Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
banner
rakeldur.bsky.social
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
@rakeldur.bsky.social
Allt um 18. öldina.
Brúnar myndir af brúnu hrafnasparki.
Ég vinn hjá Þjóðskjalasafni Íslands að útgáfu Yfirrréttarins á Íslandi, tíu binda ritröð sem spannar öll dómsmál Yfirréttarins frá 1690-1800.
Pinned
Margir hafa komið að máli við mig og spurt hvernig Yfirrétturinn líti út. (Þeas vinkona mín spurði mig í sundi í fyrradag.)

Ritstjórnarregla 1, 2 og 3 er að svona bók getur mest verið sirka 680 blaðsíður og við troðum eins mörgum árum og hægt er í hvert bindi.
A woman from one of the richest families in Iceland insists on self-publishing her hopeless books for children. Then acts as if she's being wronged when they don't sell, as if she's losing precarious money.

She could fund a residency. A charity library. An ambitious publishing house. Anything.
February 4, 2026 at 3:32 PM
„Hr. commissariorum stefnu- og processaextraderan, með víðari bekostning til réttarins, svo kominna sem ókominna, delinqventanna vegna, anfæri ég hér ekki, ...“

Geggjuð setningaruppbygging Pétur, gott flex.
February 3, 2026 at 1:58 PM
5° Mín reisa og reisukostnaður hingað úr Múlasýslu á þetta þing með 15 hesta og 3 menn, mér og delinqventerne til upppössunar*, fram og til baka 28 ríkisdalir.

Kostnaðarreikningar eru líka skemmtilegir því þeir eru heimildir um ferðalög á 18. öld

*ekki alveg viss með þetta orð
February 3, 2026 at 1:56 PM
„Framlagði svo sýslumaðurinn Pétur sinn kostnaðarreikning.“

Elska kostnaðarreikninga frá 18. öld. Þeir eru listform, í nöldri og barlómi.
February 3, 2026 at 1:31 PM
Þvílík hamingja að vera í starfi þar sem fólki finnst líklegt að ég geti hjálpað við að komast hví hver hr. Oddur Jónsson var, sem var að sérpanta vörur á Básendahöfn árið 1784.

Hr. Oddur pantaði svartar „bukkeskind“-buxur og „en overskaaren mörkebruun paruque“ í öskju, upp á 6 ríkisdali.
February 3, 2026 at 12:45 PM
Ég mun að sjálfsögðu fyrst breiða vatnsheldan dúk yfir skjölin, tölvurnar og Jóhönnu yfirritstjóra.
Þegar ég lýk við skjalaleit og uppskriftir í Sunnefumáli ætla ég að hrista úr kampavínsflösku út um allt hér inni á skrifstofu og ofan í stóran verðlaunabikar sem ég mun svo svolgra úr, sigurreif.
February 3, 2026 at 10:37 AM
Þegar ég lýk við skjalaleit og uppskriftir í Sunnefumáli ætla ég að hrista úr kampavínsflösku út um allt hér inni á skrifstofu og ofan í stóran verðlaunabikar sem ég mun svo svolgra úr, sigurreif.
February 3, 2026 at 9:35 AM
Candlemas Day was also used for weather predictions for the rest of winter in Iceland, but without any animals (probably due to the general lack of wild mammals in country)
February 2, 2026 at 3:36 PM
Ég segi topp þrjú listann á 18. öld, topp tíu í allri Íslandssögunni. Myndi persónulega setja Bjarna Halldórsson, sýslumann í Húnavatnssýslu, í fyrsta sæti og Hans Wium í annað sæti.
February 2, 2026 at 3:33 PM
„ ... uppástend í réttarins og laganna krafti að svo sem þau yfirbevísuð eru um það að þau fyrir mínum rétti meðkennt hafa sína blóðskömm og það í sínu frelsi óþvinguð, þá megi þau ei frá ganga téðri sinni meðkenningu í tilliti laganna, heldur eigi þau vægðarlaust eftir henni lífið að missa.“
February 2, 2026 at 3:01 PM
„... svo sem ég áleit Jón og Sunnefu manneskjur með fullu viti, rænu og forstandi, ánægilegu til að meðkenna sitt brot og láta í ljósi þá afsökun er hafa kynnu, gjörði ég yfir þeim og gekk dóm ásamt mínum meðdómsmönnum ...“
February 2, 2026 at 3:01 PM
„Ég uppástend og að mér hafi ei til komið að bjóða þeim sponte talsmann því löginn segja þeim einum skuli talsmenn setja sem ei mega í rétt ganga eður ekki kunna það, hvað mér skynjast talað um lögfellda menn, vitgranna og ómynduga en Jón og Sunnefa máttu í rétt ganga ...“
February 2, 2026 at 3:00 PM
„... ég setti þeim öngvan svaramann þar þau hans ekki óskuðu, hvað þeim þó byrjaði að gjöra ef þau hefðu hann annars hafa viljað sem ljóst er af N.l. 1. lib, 9. cap., 15. art.“

Hans Wium er búinn að fá nóg af þessu kjaftæði um verjendur fyrir táninga sem bíða dauðadóms.
February 2, 2026 at 2:59 PM
Aha! Gott lúkk!
February 2, 2026 at 2:40 PM
P. S. frá 27. júní 1754 þar sem ekki er hugsað um kynlíf, nei alls ekki, aldrei nokkurn tíma:

„... ég aldrei þenkt hefi, miklu síður framkvæmt, nokkur holdlegs samræðis verk með Sunnefu ...“
February 2, 2026 at 2:24 PM
Hans Wium gamlikall átti til dæmis undir liðnum rúmföt 5 skinn, 1 kodda, brekán og 2 hvílustoðir.

Ég las svolítið af þessum skiptabókum í námi, þegar þetta verkefni var á byrjunarreit, og heillaðist af löngum upptalningum á götóttum fötum og biliðum verkfærum í 18. aldar dánarbúum.
February 2, 2026 at 1:50 PM
Þvílík undur að vera uppi árið 2026 og geta flett upp öllum þessum dánarbúum á netinu, ha!

Upphæð dánarbúsins var 611 ríkisdalir, sem er minna en kostnaðurinn sem Hans Wium var krafinn um vegna Sunnefumáls en þurfti svo aldrei að borga.
February 2, 2026 at 1:42 PM
Mikill og kaótískur mánudagur. Mörg email. Fannst ég skyndilega þurfa nauðsynlega að skoða dánarbú Hans Wium.

Gefnir upp tveir erfingjar, ekkjan madame Una Guðmundsdóttir og hans skilgetinn sonur eftir fyrri konu, monsjör Evert Wium.
February 2, 2026 at 1:39 PM
10 million dollars?
February 2, 2026 at 1:35 PM
Mér finnst bara alltaf ómótstæðilegt að heyra fólk tala árið 1745.

(Með öllum þeim varnöglum sem þarf að setja um bilið milli tals og skrásetningar)
February 2, 2026 at 10:33 AM
... hvar til hann svaraði: Að hann því öngvan veginn neitaði og sú sín yfirsjón væri alkunnug.
February 2, 2026 at 10:27 AM
3° Eru þér af mér tilspurðir, hvört þér neitið því að þér ratað hafið í þá ógæfu að vera dæmdir fyrir opinberan þjófnað útlægur úr Norðlendingafjórðungi eftir tilvísan nefndrar alþingisbókar fyrir árið 1733 n. 19?
February 2, 2026 at 10:26 AM
... hvar upp á hann gaf þetta svar: Að hann ei myndi hvört sýslumaðurinn hefði spurt sig að sinni meining um þetta mál, en sér þyki það þó vel líklegt.
February 2, 2026 at 10:26 AM
2° Hvört þér genguð nokkurn dóm á hértilteknum stað og tíma í téðu blóðskammarbarneignarmáli áðurnefndra systkina ásamt velnefndum sýslumanni Wium og hans meðdómsmönnum?
February 2, 2026 at 10:25 AM
... hvar til Örnólfur svaraði: Að hann því ei neita kynni að hann til þingvitnis og meðdómsmanns hefði nefndur verið í þessu máli af sýslumanninum.
February 2, 2026 at 10:25 AM