Kjartan Jóhannes
snemmi.bsky.social
Kjartan Jóhannes
@snemmi.bsky.social
Hvaða sadisti ákvað að besti og versti Nocco-inn væru í svona umbúðum?
May 25, 2025 at 4:08 PM
Ertu manneskjan sem man hvar sólarvörnin er inni í geymslu þegar eini sólardagur ársins kemur eða ferðu í árlegu búðarferðina og splæsir í eina flösku sem að þú veist að þú munt ekki taka nema svona 1/15 úr?
May 18, 2025 at 2:55 PM
Er að horfa á beina útsendingu frá Vatíkaniu og er mjög forvitinn á að vita hvort fólk taki almennt þjóðfánann sinn með í ferðalög.
May 8, 2025 at 5:09 PM
Hver er versti vinnustaða"hrekkur" sem þið hafið orðið vitni að?

Ég var einu sinni að vinna í búð og þar var einn sumarstarfsmaðurinn tekinn, lokaður inn í pappapressunni og allt sett af stað, það var slökkt aftur áður en pressan fór eitthvað langt niður, en öskrin sem að komu voru rosaleg.
May 2, 2025 at 1:50 PM
Er svo hugmyndasnauður akkúrat núna þannig að ég bið um ábendingar um bækur fyrir 4 ára börn.
April 21, 2025 at 10:09 PM
Losnar maður einhvern tímann við hræðsluna um að maður sé kannski óvart með byssu í vasanum þegar maður fer í gegnum öryggishliðið á Keflavíkurflugvelli?
March 20, 2025 at 6:14 AM
Ráð númer 1 er greinilega "engir litir"
February 27, 2025 at 10:47 AM
Elska þegar það koma "órekjanlegar" spurningakannanir í vinnunni og það er ekki hægt að svara þeim án þess að fyrirtækið viti nákvæmlega hver maður er. Spurt um starfstitil, aldur og kyn. Ekki erfitt að komast að því hver svarar hverju.
February 11, 2025 at 1:07 PM
Fyrrverandi ráðherra að koma með sparnaðarhugmyndir fyrir nýja ríkisstjórnin og eina sem ég get hugsað er "hvað varst þú að gera síðustu 7 árin ef það er svona auðvelt að spara nokkra milljarða"
January 11, 2025 at 9:38 PM
Veit einhver hvernig lögin virka með persónuvernd og ungbarnaljósmyndun. Ef þú ferð með barnið þitt í myndatöku, má þá ljósmyndari nota þá mynd í auglýsingar án þinnar vitundar næstu árin?
January 10, 2025 at 9:43 AM
Brandarar sem þýðast illa yfir á íslensku #1.

Hvað eiga Alexander mikli og Bangsímon sameiginlegt? Millinafnið.
January 1, 2025 at 4:39 PM
Bjarni Ben elskar að spyrja fólk spurninga og tala það svo í kaf og kvarta yfir að hafa ekki fengið nein svör.
December 31, 2024 at 3:21 PM
Hef ekki keypt flugelda eftir að pabbi dó fyrir 13 árum síðan. Er núna að fara að kaupa eitthvað smotterí til að hafa sýningu fyrir 3ja ára son og ég get svarið að ég er spenntari fyrir þessu en hann.
December 30, 2024 at 9:10 PM
Í hvert sinn sem Blæja fer óvart í gang í sjónvarpinu.
a boy is covering his ears in a black and white photo .
ALT: a boy is covering his ears in a black and white photo .
media.tenor.com
December 22, 2024 at 9:14 AM
Barnið mitt enn að finna upp á bættri útgáfum af jólasveininum. Í nótt kemur pylsukallinn sem grillar allar pylsurnar.
December 19, 2024 at 10:17 PM
ég hef pínu áhyggjur af fólkinu sem vinnur á DV. Henda reglulega í fréttir þar sem einhver er "óþekkjanlegur" en það er svo bara mynd af leikara sem er 10 árum eldri en hann var þegar hann var upp á sitt frægasta en hefur annars ekkert breyst.
December 19, 2024 at 1:17 PM
Sonur minn er búinn að tilkynna öllum að vörusleikir sé að koma í nótt. Mér finnst það mun áhugaverðari jólasveinn en þvörusleikir.
December 14, 2024 at 9:35 PM
Ég á þriggja ára barn. Nenni ekki fyrir mitt litla líf að skoða spotify samantektina.
December 5, 2024 at 3:04 PM
Ég var alltaf hlyntur rafrænum kosningum, en eftir að hafa verið vitni af því hvernig rafræn skilríki virka á kjörstað er ég ekki bjartsýnn á að það sé að fara að gerast á næstunni.
November 30, 2024 at 6:32 PM
Reposted by Kjartan Jóhannes
Kaldhæðnislegt að Simmi “Wintris” D sé að tala um að greiða sitt til samfélagsins. #kosningar24
November 28, 2024 at 8:51 PM
Það þyrfti að taka upp einhverskonar skákklukku og x tíma á hvern formann í þessu til að einn aðili geti ekki alltaf verið að grípa frammí og tekið yfir þáttinn.

#kosningar24
November 28, 2024 at 8:41 PM
Eru fleiri en ég sem finnst íslensku jólalögin hátíðlegri en þau erlendu?

Ég kemst ekki í jólaskap við að hlusta á erlendum lög og byrja því oft að hlusta á þau í nóvember en geymi hin fram í desember.
November 28, 2024 at 11:09 AM
Þú labbar inn í strætó og þar taka 6 eintök af @villineto.bsky.social á móti þér.
Hvað gerir þú?
November 1, 2024 at 1:36 PM
Nú er Lubbi og málbeinið mjög gott efni, en hefði ekki mátt nota eitthvað annað en jólalög í þetta?
September 30, 2024 at 1:56 PM
Munið krakkar, vinnunni er sama um þig.
August 30, 2024 at 8:34 AM