Virk í Athugasemdum
banner
asdisvirk.bsky.social
Virk í Athugasemdum
@asdisvirk.bsky.social
Eyri við Ingólfsfjörð fan account
Ég er farin að hugsa þetta mjög langt og ég er komin að þeirri niðurstöðu að þú sért laumu-hakkari sem sérhæfir þig í social engineering og sért núna komin inná heimabankann hans og búin að ræna aleigunni af honum.
October 13, 2025 at 8:58 AM
Ok hvernig kemur til að þið farið að ræða þetta í bílnum? Ég spjalla mjöööög mikið við leigubílstjóra, en ég er ekki viss um að ég hefði náð að láta þetta koma upp, ekki nema ég hefði tekið taxa á Egilsstaði kannski.
October 13, 2025 at 8:56 AM
Ég sit á Max1 að bíða eftir að farartækið mitt sé búið í smurningu og var í mikilli lægð af mjög skiljanlegum ástæðum. Þið endurvöktuð lífsviljann minn, amk í bili.
October 13, 2025 at 8:53 AM
Ég er búin að hugsa óþægilega mikið um þetta síðustu ár, sérstaklega hvað varðar fjármögnun menntunar, stöðu skólakerfisins og áherslur stjórnmálamanna, og ég er búin að lesa þessa skýrslu frá 2004 óþægilega oft, bara því ég hata hana, og ég hata þessa málsgrein mest af öllu:
September 12, 2025 at 9:27 AM
Ég skil alveg virði þess að skoða hreinar hagrænar afleiðingar og ég er sammála því að það sé mikilvæg breyta, en ég verð svo oft svo þreytt á rörsýni margra hagfræðinga. Gæs, við lærðum hagfræði við félagsvísindasvið. Hagfræði er í grunninn félagsvísindi, afhverju viljum við ekki viðurkenna það?
September 12, 2025 at 9:21 AM
Ég væri bara rosalega til í að það væri hægt að af-markaðsvæða menntun og þekkingarsköpun. Samfélagsleg arðsemi menntunar í þessu tilfelli er metin eingöngu sem hagrænn ávinningur og virðisauki í hagkerfinu. En til þess þyrfti væntanlega að snúa samfélaginu okkar og gildismatinu á hvolf.
September 12, 2025 at 9:18 AM
Togstreitan er áþreifanleg.
September 9, 2025 at 8:09 PM
Þessa stundina er hann að klæða sig í frönsku landsliðstreyjuna sína, merkta Mbappé, muldrandi "sorrý Ísland" í sífellu. Þetta verður eitthvað.
September 9, 2025 at 7:58 PM
Ok ég var að fara að leggja til að allir myndu bara horfa á þetta myndband í staðin, en þú varst fljótari. Þá legg ég Noel Fielding sem Bush eftirhermu í púkkið í staðinn.

youtu.be/du4uH1fC9B8?...
Noel Fielding does "Wuthering Heights" - Let's Dance for Comic Relief 2011 Show 2 - BBC
YouTube video by BBC
youtu.be
September 3, 2025 at 10:47 PM
Einfalt. Skilur barnið eftir bundið við eitthvað vel fest og massíft, með vatnsskál á gólfinu og kattarsand í góðri skál. Svo finnurðu mjög massaða einstaklinga af því kyni sem þér þykir best til að bera þig á kóngastóli til og frá Austurvelli og passa uppá orkuna þína.

Sjáumst á laugardaginn.
September 3, 2025 at 2:18 PM
4/10 - París er klén, margir búnir að vera þar margoft!

Rejeté.
September 3, 2025 at 2:15 PM
Þetta er auðvitað bara mjög löng leið til að segja að ég sakna @andresingi.bsky.social og vill hann aftur á þing, strax. Pæliði í því hvað það væri næs að hafa eitthvað alvöru aðhald á þingi núna, sem væri ekki bara að reyna að draga þessa alltof hægri sinnuðu "félagshyggju"stjórn lengra til hægri?
August 26, 2025 at 12:43 PM
Staðan er því miður sú að í raun og veru eru fáir stjórnmálamenn á þingi núna sem ég treysti. En ég er hinsvegar mjög til í að gefa sjálfstæðisflokknum eins langt frí frá því að leið þetta land einsog mögulegt er og veit að núverandi stjórn getur ekki lagað það sem þau vilja laga á einni nóttu.
August 26, 2025 at 12:43 PM
Sjallar, ef þið vitið svona vel hvað þarf til að laga þetta, afhverju gerðuð þið það ekki meðan þið gátuð?

Ég er enginn aðdáandi núverandi ríkisstjórnar, þvert á móti er ég mjög óánægð með margt þar, sérstaklega hjá dóms- og utanríkisráðherrum, og sú óánægja á þá líka við þá sem leiða þessa stjórn.
August 26, 2025 at 12:43 PM
Ef þú ert með birki eða gras ofnæmi geturðu farið í afnæmingu þar sem þú ert basically að míkródósa ofnæmisvakann yfir lengra tímabil og endar á því að vera (vonandi) laus við ofnæmissvörun. Það er bara að fá tíma hjá ofnæmislækni og ganga í málið!
August 13, 2025 at 2:26 PM
Afnæming er næsta skref hjá mér, ég get ekki lifað með þessi lengur.
August 13, 2025 at 2:16 PM
Þú ert svo fokkans klárt😍😍! Einn daginn mun ég eignast Glyttuverk - það skal gerast!
August 11, 2025 at 11:56 AM