Hermigervill
banner
hermigervill.bsky.social
Hermigervill
@hermigervill.bsky.social
Hakkebøf fra helvede
Alltaf þegar ég set á A-hlið á plötu segi ég við hana "Hvað segirðu Side-A mín?"
February 15, 2026 at 8:39 PM
Besta leiðin til að ná hollenskum hreim í ensku er að tala með amerískum hreim nema nota alltaf “f” hljóð þar sem er “v” og alltaf “t” hljóð þar sem er “d”.

Prufið þetta bara og þið munuð sjá.
Are you Dutch perhaps?
February 11, 2026 at 3:13 PM
Kominn í eitthvað djúp-70s rokk í leit að trommubreikum…
February 11, 2026 at 12:14 PM
Dagurinn í dag, 11/2 er 112 dagurinn!

Fyrir nokkrum árum gerði ég lag fyrir Neyðarlínuna til að kenna krökkum að hringja í 112. Fékk Villa Netó og Sillu systur úr BSÍ til að flytja það:
Númerið er 112
YouTube video by Release - Topic
youtu.be
February 11, 2026 at 11:42 AM
Ég hef ekki spilað proper Hermigervils live sett síðan held ég AFÉS ‘22 (getur það verið??)

Er núna búinn að grafa upp græjurnar og ætla að telja í á hinni margfrægu listahátíð Hörmungardögum á Hólmavík þessa helgi!

Vona að þetta drasl virki allt ennþá!
February 6, 2026 at 12:23 PM
Nei ha? ?? Þetta má ekki gerast!
Lucky Records gjaldþrota
Einkahlutafélagið Lucky Records, sem rekið hefur samnefnda plötubúð á Rauðarárstíg, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
www.mbl.is
February 3, 2026 at 1:20 PM
Biðst fyrirfram afsökunar á að brydda hér upp á leiðinlegasta umræðuefni landsins, nagladekkjum.

Er viljandi ekki á nöglum í bænum, en þarf að skreppa á Vestfirði í nokkra daga í febrúar, og ætla að prufa að leigja mér nagladekk. Verður forvitnilegt að sjá hvernig það kemur út.
February 3, 2026 at 12:22 PM
Vantar bara rauða…
January 31, 2026 at 11:48 PM
Spurning: Er þessi síðasta vika virkilega búin að vera brjálaðri í heimsmálunum en venjulega, eða er ég bara búinn að doomscrolla mig í einhverja holu?
January 29, 2026 at 10:58 PM
Djöfull er Stokkhólmur næs borg! Var eiginlega búinn að gleyma því, hef ekki komið hingað í nokkur ár.
January 26, 2026 at 7:10 PM
Alltaf gaman þegar tónlistin manns er spiluð á Berghain, klúbbi klúbbanna 😎💪
January 19, 2026 at 6:06 PM
Nú er ég ekkert mikill preppari þannig, en ég ætla samt að ráðleggja ykkur, ef þið eigið mikilvæg gögn á amerískum síðum, eins og t.d. Dropbox, OneDrive o.þ.h. að kaupa harðan disk og ná í þetta allt og eiga afrit sem ekki er hægt að loka á aðgang að. Bara til vara.
January 19, 2026 at 5:07 PM
Var kominn með frekar flott sánd hérna þegar hljóðgervillinn ákvað að frjósa. Já krakkar mínir, hljóðgervlar geta líka frosið. Gamangaman.
January 12, 2026 at 4:32 PM
Já þetta var besta skaup í svona 10 ár!
December 31, 2025 at 11:21 PM
Smá throwback, þegar við Unnsteinn spiluðum acid techno geðveiki í Kryddsíldinni, held að það hafi verið 2021.
December 31, 2025 at 6:19 PM
Takk fyrir okkur í gær! Þetta var sjúklega gaman og góður endapunktur á klikkuðu ári! #RetroStefson
December 31, 2025 at 6:00 PM
Þið þarna með fröllurnar, halló! Brún sósa!
December 30, 2025 at 12:17 PM
Ef ykkur vantar íslenskt orð fyrir "Edgelord" þá er ég með það fyrir ykkur: "Randjarl"
December 26, 2025 at 6:19 PM
Ég var sendur í að gefa henni Mollý, kisunni þeirra @naglalakk.bsky.social og @heida.bsky.social jólamatinn. Hún var rosa glöð að fá smá félagsskap 😍😍😍
December 24, 2025 at 11:21 PM
Hérna er eitt gleymt en grjóthart jóla-syntha-popp frá 1986. Veit lítið um þetta, en þessi plata er víst til í allskyns litaafbrigðum og inniheldur fullt af synthajólalögum með gríntextum. Uppáhalds línan mín í þessu er klárlega "jæja Leppalúðafíflið þitt, taktu nú sóló!"

Gleðileg jól kæru vinir! 🎄
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson & Co - Þrettándagleði Týs [Obscure Icelandic Christmas Synth Pop - 1986]
YouTube video by Hermigervill's Record Corner
www.youtube.com
December 24, 2025 at 2:48 PM
Erum að selja splúnkunýtt Retro Stefson merch og tónleikamiða á Prikinu í dag!
December 23, 2025 at 6:06 PM
Fór til köben í dag til að sjá litla bróður minn spila mastersprófið sitt á fagott. Hann spilaði m.a. verk eftir sjálfan sig á kontrafagott í gegnum lúpper og það var stórkostlegt og ég er að springa úr stolti.
December 15, 2025 at 11:51 PM
Ok þessi flensa er ekkert grín. Búinn að liggja í köldu svitabaði síðan á þriðjudag, og er rétt að ná mér núna.
December 12, 2025 at 1:45 PM
Ok boomer
December 3, 2025 at 8:41 PM
Nei allt í lagi, ég drekk bara á dögum sem enda á “r”.
November 22, 2025 at 7:42 AM