Valgarður
valgardur.bsky.social
Valgarður
@valgardur.bsky.social
Ætli það megi ekki skilgreina áhugamálin sem: tónlist, fótbolti, stjórnmál, kvikmyndir, skák, bridge, póker
Fótbolti, frí

Kannski er kominn tími til að taka hlé frá því að horfa á og fylgjast með fótbolta. Auðvitað skiptir fótbolti ekki miklu svona fyrir gang heimsmála en mér hefur nú samt fundist gaman að horfa á góðan fótbolta – ekki síst síðustu árin þegar Blikar hafa (ekki bara konurnar) náð…
Fótbolti, frí
Kannski er kominn tími til að taka hlé frá því að horfa á og fylgjast með fótbolta. Auðvitað skiptir fótbolti ekki miklu svona fyrir gang heimsmála en mér hefur nú samt fundist gaman að horfa á góðan fótbolta – ekki síst síðustu árin þegar Blikar hafa (ekki bara konurnar) náð frábærum árangri og spilað skemmtilegan fótbolta. Það hefur nú reyndar ekki verið gefandi að fylgjast með “mínum mönnum” á Englandi, þeas.
valgardur.blog
October 23, 2025 at 9:28 AM
Verð að játa að ég er engan veginn sáttur við þá ákvörðun félaga minna hjá Blikum að skipta um þjálfara. Halldór hefur verið aðstoðar- og aðalþjálfari í mörg ár, á tímabili sem liðið hefur (oftar en ekki) spilað frábæran fótbolta og skrifað stóra kafla í sögubækur íslensks fótbolta.
October 20, 2025 at 7:38 PM
Fótbolti og þjálfarar

Það hefur eitthvað borið á hugmyndum um að skipta um þjálfara hjá meistaraflokki karla í fótbolta hjá mínu félagi, Breiðablik. Þetta er furðuleg umræða og lyktar af einhverju allt öðru en framtíðarsýn fyrir félagið. Ef við þekkjum sögu fótboltans þá eru þau félög sem hafa náð…
Fótbolti og þjálfarar
Það hefur eitthvað borið á hugmyndum um að skipta um þjálfara hjá meistaraflokki karla í fótbolta hjá mínu félagi, Breiðablik. Þetta er furðuleg umræða og lyktar af einhverju allt öðru en framtíðarsýn fyrir félagið. Ef við þekkjum sögu fótboltans þá eru þau félög sem hafa náð ítrekuðum árangri til lengri tíma ekki þau félög sem eru stöðugt í örvæntingu að skipta um þjálfara..
valgardur.blog
September 20, 2025 at 7:31 PM
Hvar eru allir…?

Nú er ég ekki mikið fyrir samsæriskenningar, tek þeim yfirleitt með nokkuð miklum fyrirvara og er gjarnan leiðinlegi gaurinn sem vill staðfestar upplýsingar, staðreyndir og gef ekki mikið fyrir ábúðarfulla þuli að röfla samhengislaust með dramatískri tónlist og myndskreytingum á…
Hvar eru allir…?
Nú er ég ekki mikið fyrir samsæriskenningar, tek þeim yfirleitt með nokkuð miklum fyrirvara og er gjarnan leiðinlegi gaurinn sem vill staðfestar upplýsingar, staðreyndir og gef ekki mikið fyrir ábúðarfulla þuli að röfla samhengislaust með dramatískri tónlist og myndskreytingum á JútJúb, hvað þá grautarlegar samfélagsmiðla færslur. En svo eru vangaveltur um að pakkið sem situr að völdum í appelsínu gula húsinu vestanhafs hafi fórnað einum af sínum til að fá tylliástæðu til að ráðast gegn pólitískum andstæðingum með ofbeldi og mannréttindabrotum.
valgardur.blog
September 20, 2025 at 7:25 PM
Reposted by Valgarður
Ég var að átta mig á að ég hef töluvert meiri áhyggjur af framtíðinni og ástandi heimsins núna en nokkurn tíma fyrr. Meira að segja töluvert meiri en í Covid.
September 16, 2025 at 8:30 AM
ég efast um að þetta sér rétt, vona það samt, en andúðin er vegna hegðunar þeirra, ekki vegna þess hverjir þeir eru...

www.visir.is/g/2025277064...
Segir and­úð meiri í garð Miðflokksmanna en trans fólks - Vísir
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, hefur komið flokksbróður sínum Snorra Mássyni til varnar en hann hefur mátt þola holskeflu gagnrýni vegna orðræðu hans og framkomu í Kastljósi á mánudag. ...
www.visir.is
September 3, 2025 at 12:44 PM
Umhyggja fyrir börnum, öldruðum og sjúklingum

Nú er fjarri mér að gera lítið úr áhyggjum margr af því að við stöndum okkur ekki nægilega vel í að sinna börnum, öldruðum og sjúklingum. Það má örugglega gera betur. Reyndar virðast áhyggjurnar aðallega snúast um þá sem hafa búið hér lengi og eiga…
Umhyggja fyrir börnum, öldruðum og sjúklingum
Nú er fjarri mér að gera lítið úr áhyggjum margr af því að við stöndum okkur ekki nægilega vel í að sinna börnum, öldruðum og sjúklingum. Það má örugglega gera betur. Reyndar virðast áhyggjurnar aðallega snúast um þá sem hafa búið hér lengi og eiga helst ættir sínar að rekja að lágmarki einhverjar aldir hér á landi. Og einhverra hluta vegna virðast margir tengja þetta við að það fari svo miklir peningar í að aðstoða flóttafólk og innflytjendur að það sé bókstaflega ekkert eftir fyrir aðra.
valgardur.blog
August 13, 2025 at 10:45 PM
Kannski ekki rétt að telja kjúklingabitana fyrr en eggin eru komin á pönnuna, en erum við mögulega að horfa á tvö íslensk lið í Evrópu í vetur?
August 7, 2025 at 8:02 PM
Ekkert VAR, enginn ég

Ég er að gefast upp á að horfa á íslenska boltann. Ég geri mér grein fyrir að störf dómara eru erfið og hafa aldrei verið erfiðari. Leikurinn er hraðari, leikmenn orðnir nokkuð útsmognir í að leika á dómara og sífellt meira í húfi. Hvers vegna í dauðanum er dómurum neitað um…
Ekkert VAR, enginn ég
Ég er að gefast upp á að horfa á íslenska boltann. Ég geri mér grein fyrir að störf dómara eru erfið og hafa aldrei verið erfiðari. Leikurinn er hraðari, leikmenn orðnir nokkuð útsmognir í að leika á dómara og sífellt meira í húfi. Hvers vegna í dauðanum er dómurum neitað um ódýrara, einfalda aðstoð í form VAR? Þetta þarf ekki að vera flókið og þetta þarf ekki að taka tíma – það er einfaldlega spurning um hvernig þetta er gert.
valgardur.blog
August 4, 2025 at 1:09 PM
Myndskreytingar frétta

Ég geri mér grein fyrir nauðsyn þess að fjalla vel um athafnir og orð ónefnds fávita sem situr að völdum hér ekki langt frá og hvers nafn ég tek mér hvorki í munn né set "á blað". Mér finnst eðlilegt og um að gera að gera vel grein fyrir núverandi atburðarás þar sem allar…
Myndskreytingar frétta
Ég geri mér grein fyrir nauðsyn þess að fjalla vel um athafnir og orð ónefnds fávita sem situr að völdum hér ekki langt frá og hvers nafn ég tek mér hvorki í munn né set "á blað". Mér finnst eðlilegt og um að gera að gera vel grein fyrir núverandi atburðarás þar sem allar líkur eru á að ferill viðkomandi sé að kafna í eigin ælu.
valgardur.blog
July 24, 2025 at 10:53 AM
Rökleysan með síðasta hálmstráið til að verja trúðinn í vestri

Ég á (átti) nokkra vini / félaga / kunningja sem studdu trúðinn sem situr á forsetastól í ónefndu ríkjasambandi. Það hefur talsvert kvarnast úr stuðningnum.. hann átti að hafa svo mikið vit á viðskiptum, en skilur ekki hvernig tollar…
Rökleysan með síðasta hálmstráið til að verja trúðinn í vestri
Ég á (átti) nokkra vini / félaga / kunningja sem studdu trúðinn sem situr á forsetastól í ónefndu ríkjasambandi. Það hefur talsvert kvarnast úr stuðningnum.. hann átti að hafa svo mikið vit á viðskiptum, en skilur ekki hvernig tollar virka og virðist halda að framleiðendur í öðrum löndum borgi þá.. eitthvað fækkaði nú í aðdáendahópnum þegar þetta kom í ljós.
valgardur.blog
July 24, 2025 at 10:40 AM
það er einhver furðuleg bylgja af fólki sem "vill hafa vit fyrir mér" þegar kemur að því að ákveða hvort ég verði slæmur af að fá mér bjór á íþróttaviðburðum.. hef ekki séð nein vandamál (reyndar aðallega að mæta í Kópavoginn), þvert á móti, þeir sem vilja umgangast bjórinn eðlilega og án vandræða.
May 21, 2025 at 8:58 AM
Sé víða notast við frasa um steina og syndir (ekki skoðað og hef ekki skoðun á því sem kveikir núna).
En eru þetta ekki frekar furðuleg rök? Þarf enginn nokkru sinni að bera ábyrgð á neinu, hversu alvarlegt sem það er, vegna þess að allir hafi einhvern tíma gert eitthvað rangt, þó lítilvægt sé.
March 22, 2025 at 12:03 PM
Rifjaði upp frétt, gaf ekki mikið fyrir hana á sínum tíma, en eitthvað hefur nú komið í ljós sem styður og hún myndi skýra margt.. þó það sé auðvitað ekki endanleg staðfesting.

En skiptar kannski ekki málið - gaurinn hagar sér nákvæmlega eins og þetta sé rétt.

www.theguardian.com/us-news/2021...
‘The perfect target’: Russia cultivated Trump as asset for 40 years – ex-KGB spy
The KGB ‘played the game as if they were immensely impressed by his personality’, Yuri Shvets, a key source for a new book, tells the Guardian
www.theguardian.com
March 6, 2025 at 11:17 PM
Íslensk fótboltalið í Evrópu

Rétt og skylt að óska Víkingum aftur til hamingju með árangurinn í Evrópu, vel gert og skilar sér í íslenskan fótbolta. Breiðablik og Víkingur – og kannski KA eitt skiptið – hafa verið í fararbroddi íslenskra liða í Evrópu síðustu árin og árangurinn skilar sé í…
Íslensk fótboltalið í Evrópu
Rétt og skylt að óska Víkingum aftur til hamingju með árangurinn í Evrópu, vel gert og skilar sér í íslenskan fótbolta. Breiðablik og Víkingur – og kannski KA eitt skiptið – hafa verið í fararbroddi íslenskra liða í Evrópu síðustu árin og árangurinn skilar sé í íslenskan fótbolta, fleiri íslensk lið fá þátttökurétt í Evrópukeppnum og við fáum fleiri leiki.
valgardur.blog
March 4, 2025 at 9:28 PM
Nágranninn

Það rifjast upp saga af fjölskyldu í litlu þorpi. Einn nágranninn, Tinni P., nokkuð vel stæður og þekktur ofbeldismaður, réðist inn til fjölskyldunnar, byrjaði reglulega að ræna og rupla og beita grófu ofbeldi. Flestir aðrir í nágrenninu reyndu að koma til hjálpar en það var erfitt að…
Nágranninn
Það rifjast upp saga af fjölskyldu í litlu þorpi. Einn nágranninn, Tinni P., nokkuð vel stæður og þekktur ofbeldismaður, réðist inn til fjölskyldunnar, byrjaði reglulega að ræna og rupla og beita grófu ofbeldi. Flestir aðrir í nágrenninu reyndu að koma til hjálpar en það var erfitt að eiga við ofbeldismanninn, enda vel stæður og átti nokkra vini í þorpinu, “vini” sem hann hafði undir hælnum.
valgardur.blog
March 1, 2025 at 10:12 PM
Þá er fer ekki á milli mála að einn valdamesti maður heims er gjörsamlega sturlaður.
Ég sakna eiginlega "góðu gömlu dagana" - heimskur, fáfróður, lygasjúkur, illa upplýstur ræfill með mikilmennskubrjálæði með pabbapeninga til að kaupa sér völd með því að spila á fáfræði og níðast á minnihlutahópum..
February 26, 2025 at 11:05 PM
Við fengum kött í heimsókn sem vildi setjast að, um tíma mögulega köttur vina okkar, en við skoðun á myndum reyndist nefið öðru vísi..
"kattarnef" verið mér ofarlega í huga síðustu daga.
February 21, 2025 at 9:30 AM
Svekkjandi og ósanngjarnt tap Víkinga en þeir mega vera stoltir af frammistöðunni, hafa sett markið hátt fyrir önnur íslensk félög og svona árangur skilar sér í íslenska boltann..
February 21, 2025 at 9:28 AM
Gylfi er jú frábær í fótbolta..
En ég skil ekki hvers vegna félaga mínir hjá Blikum voru að reyna að fá hann til félagsins, hvað þá þessar 'pillur' eftir að það gekk ekki.
Ég skil frekar hvers vegna aðrir höfðu áhuga og hvers vegna hann valdi þá frekar, ólíklegt að peningar hafi breytt miklu.
February 20, 2025 at 10:55 AM
Reposted by Valgarður
This is article highlights the crisis of trust that we are seeing in several democracies.

"Large numbers of (people) have lost faith in the institutions that are needed for democratic governance, leading some of them to vote for candidates who appear intent on dismantling democracy as we know it"
Trust in democratic parliaments suffers ‘global decline’, study finds
The report’s lead author said such declines tend to be associated with increased support for populist and anti-establishment parties.
www.independent.co.uk
February 19, 2025 at 2:30 PM
The rambling about "deep-state" was not about fighting one, that did not exist, their plan was to create one.
February 4, 2025 at 5:17 PM
Nú gef ég ekki mikið fyrir kenningar um svokallað "djúp-ríki", en ef ég gerði þá þætti mér deginum ljósara að núverandi gaur væri ekki í krossferð gegn því, heldur augljóslega að sölsa það undir sig.

Sem kannski vekur upp spurningu, kannski greip hann hugmyndina á lofti og ákvað búa þetta til.
February 3, 2025 at 3:08 PM