Alma Melsteð
banner
melsted.bsky.social
Alma Melsteð
@melsted.bsky.social
Bara basic hedonisti í helvíti
Passive aggressive pæling dagsins er hvort ég eigi að byrja að commenta á myndir af tani eins ég myndi commenta á mynd af öðrum líkamlegum áverkum eftir slys. Eitthvað eins og “æ elsku hræðilegt að sjá”, “æ úff, greyið húðin þín”, “svakalegt! Auðvelt að vera vitur eftir á” eða bara “skjótan bata!”
September 21, 2025 at 6:30 PM
Þegar maður á útikisu þá getur maður ekki farið uppí rúmið á kvöldin fyrr en búið er að hreinsa burt illa sanda.
November 27, 2023 at 11:54 PM
“Are you still watching?” mögulega dónalegasta spurningin.
November 21, 2023 at 8:41 PM
Er til eitthvað flóknara en accounts centre frá Meta(Instagram/Facebook)?
November 16, 2023 at 9:46 PM
Treflar fyrir brussur eru smekkir í dulargervi.
November 7, 2023 at 11:51 AM
Er enginn að ræða það að þessi maður flúði landið sitt vegna hatursfullra skoðana sinna á samkynhneigð?
"Greindi hann frá áreiti er hann varð fyr­ir ... Lögðu þeir vin­irn­ir þar áherslu á að sam­kyn­hneigð væri óboðleg inn­an krist­inn­ar trú­ar og skyldi sam­fé­lagið því hafna þeirri hneigð."
Kwateng ekki ofsóttur af réttum aðilum
Samkvæmt úrskurði kærunefndar um útlendingamál frá árinu 2018 reyndist Isaac Kwateng ekki teljast flóttamaður í skilningi útlendingalaga þar sem predikanir hans gegn samkynhneigð í Gana...
www.mbl.is
October 17, 2023 at 3:21 PM
Er með svo slæm viðbrögð við moskítóbitum eftir ítölsku sveitina að ég keyrði beint af flugvellinum á læknavaktina í gærkvöldi. Gerði svo myndaleit á google en finn engar myndir sem líta jafn illa út og þessi bit. Smá "sigur" að vera það með það weak ass húð að hún slær út google myndaleitinni.
September 25, 2023 at 11:22 AM
Engar áhyggjur, fæ núna allan chaotic skammtinn eftir að ég fór að followa Erp á insta.
Vantar meiri chaotic vibes hérna eða er ég bara traumatised eftir gamla forritið?
September 24, 2023 at 2:07 PM
Vissu allir að Súperman lagið með Ladda væri ítalskt?!
September 24, 2023 at 9:42 AM
Myndi segja að ég sé ekkert mjög tropical pía. Allt yfir 20° drepur mig og akkúrat núna er eðla í felum einhvers staðar í herberginu mínu þannig að væntanlega mun ég ekki sofa í nótt. Annars bara bestu kveðjur úr ítölsku sveitinni.
September 19, 2023 at 9:39 PM
Það er eitthvað make-up trend í gangi sem lætur fólk lúkka eins og þau hafi verið skölluð beint í nefið
September 17, 2023 at 2:38 AM
Er að fara í vikufrí til Ítalíu. Talaði náttúrulega ítölsku í allan dag í vinnunni til að vera óþolandi. Kann ekki ítölsku.
September 15, 2023 at 7:56 PM
Hin klassíska íslenska dilemma: vil ég vera gella eða vil ég klæða mig eftir veðri?
September 7, 2023 at 11:32 PM
Í vikunni barst spjall við nokkra foreldra að því hvað mér fyndist það fyndið og furðulegt að fólk biðji mig aldrei að passa fyrir þau. Því ég væri svo mikið laus… já þannig að í kvöld er ég nàttúrulega að passa.
September 2, 2023 at 11:12 PM
Ætlaði að gera eitthvað gott og gefandi um helgina en svo kom lægð og ég keypti Vampire survivors.
September 1, 2023 at 10:07 PM
Fór í sjósund í dag og var að æfa mig að setja andlitið ofaní svo ég geti einhvern tímann synt venjulega án þess að halda að ég sé að drukkna. Allavega. Kinnarnar á mér eru núna eins og ég sé með útbrot. Er saltútbrot eitthvað thing?
August 31, 2023 at 10:50 PM
Hvaða app er efst í screen time hjá ykkur?
August 30, 2023 at 11:03 PM
Þegar ég sendi erindi í pósti til banka/tryggingafélags/annarra þá er ég ekki að biðja um að þau hringi í mig. Þá hefði ég hringt.
August 29, 2023 at 10:19 AM
Flestir feður eru jú motherfuckers... hvað var ég annars að lesa??
www.visir.is/g/2023245361...
August 24, 2023 at 10:17 AM
Ég er örugglega sein á vagninn en Ted Lasso eru bara svo geggjað nice þættir
August 23, 2023 at 10:47 PM
Passið ykkur, var að frétta að það væri einhver flensa að ganga
August 22, 2023 at 9:14 PM
Þarna er Slaufa kötturinn minn á uppáhalds staðnum sínum. Útí horni þar sem undir liggja heitar lagnir. En þar getur hún líka legið bakvið djembe trommuna sem móðir mín gaf mér í jólagjöf fyrir 17 árum. Sérpöntuð frá Gana eftir að ég fór á eitt trommunámskeið í Kramhúsinu sem unglingur.
August 21, 2023 at 10:45 PM
Svo biluð tilviljun með þennan bruna en ég var einmitt að keyra í gegnum Hafnarfjörð í gær og sá reyk. Ég meina hverjar eru líkurnar?!
August 21, 2023 at 7:57 PM
Sá færeyskt Tiktok sem var að gera grín að Íslendingum fyrir að halda alltaf að Færeyingar dýrki okkur. Vissi ekki að ég héldi þetta en er allavega búin að vera með höfnunartilfinningu síðan.
August 17, 2023 at 11:21 PM
Vantar meiri chaotic vibes hérna eða er ég bara traumatised eftir gamla forritið?
August 17, 2023 at 10:37 PM