👽Fannar Dauðyfli 👻
banner
disfannar7yrs.bsky.social
👽Fannar Dauðyfli 👻
@disfannar7yrs.bsky.social
Langbesti hreyfihamlaði paunktrommarinn í 105. Börn/Dauðyflin/D7Y/Guðir hins nýja tíma. (Hán)
smá prufuleikvöllur úr tölvuleik sem ég er að búa til. þessir pallar eru búnir að vera að gera út af við mig undanfarna daga. hlakka til að klára vélina sem leikurinn keyrir á svo ég geti byrjað hanna borð og fínpússa dót
October 28, 2025 at 6:36 PM
Var að komast að því að ég og Kirby eigum afmæli sama dag. Þvílík blessun
October 13, 2025 at 11:33 PM
Sum tónlistin sem ég var búið að gera var pínu dramatísk fyrir frekar kjánalegan leik
October 4, 2025 at 5:48 PM
Smá chiptune úr leik sem ég var að vinna fyrir um ári síðan og ég mun að öllum líkindum aldrei klára. Leikurinn átti að heita Sir Paddleton Pong's Basketball Panopticon og markmiðið var að gefa hann út á floppy disk
October 4, 2025 at 5:43 PM
Mér þykir fyrir því að þurfa að tilkynna ykkur það að þrátt fyrir allt er Mario Kart World fáránlega skemmtilegur leikur
June 29, 2025 at 2:09 AM
Jæja leikurinn er tilbúinn. Hægt að spila í vafra eða hala niður á slumma.itch.io/bounce-squad
April 14, 2025 at 11:51 AM
Síðan síðast er ég búið að gera borða-kerfið sveigjanlegra, gera fleiri borð, klára mest alla tónlistina (á eftir að setja hana í leikinn), lesa 300bls bók um 8x8 pixla týpógrafíu, gera prufur og svo loks hanna tvö letur fyrir leikinn. Ég lagaði svo til UI-ið og gerði game over og highscore skjái
March 26, 2025 at 2:32 PM
ég hef ákveðið að reyna að pósta vikulega um hvernig gengur til að halda mér við efnið. þessi vika gekk hægar en samt ýmislegt búið að gerast. það er komin game loopa, þú getur bjargað hlutum/rænt úr tómum gluggum, það er komið stigakerfi, líf, þú getur unnið og tapað. allt að gerast
March 19, 2025 at 5:47 PM
Hljóð í Pico-8 er frekar frumstætt en núna um helgina er ég búið að vera að reyna að finna leiðir til að forrita modulation effekta. Reyndi að spyrjast fyrir um aðferðir á netinu en fékk engin svör þannig ég er bara búið að vera að prófa e-ð. Pulse width modulation hefur heppnast best hingað til
March 16, 2025 at 10:17 PM
var að reyna að gera modulated sínusbylgju í Pico-8 en fékk bara einhver furðuleg óhljóð og svo leiddi eitt að öðru og já...
March 14, 2025 at 12:45 AM
ok fyrst það er komin vika frá því að ég teiknaði upp hugmyndina. nú er fólk komið í gluggana. það er hægt að bjarga fólkinu og það getur dáið auk þess sem spilari getur dáið. ég bætti við meira animation, hoppandi hetjan er meira gay og það er komið smá parallax scroll í bakgrunninn
March 13, 2025 at 12:12 AM