Birna Dís
birnadis.bsky.social
Birna Dís
@birnadis.bsky.social
Verkefnastjóri, lúði, mamma, húsmóðir í 108 og margt fleira rosalega venjulegt. Fíla hversdaginn, rútínu og góða drykki 🍻
Svo 100% naglinn á höfuðið 👏👏👏👏
April 8, 2025 at 1:21 PM
Ef man er mikið lasin í byrjun árs nær man þá ekki einhverju þaki og er safe út árið? Sama og með greiðsluþáttöku Sjúkratrygginga? Spyr alls ekki fyrir vin
March 23, 2025 at 6:12 PM
Er í sumarbústað að bugast úr fomo.. langar í Grósku! Áfram Halla (T) og áfram Ísland 🇮🇸
June 1, 2024 at 11:14 PM
Ég viðurkenni að ég er að horfa á seinni hluta af kappræðum sem kómískan gjörning EN! Þessar spurningar sem þau eru að fá eru bara niðurlægjandi. Eitt að grínast með þetta heima í sófa en það gilda aðrir standardar um RÚV
May 31, 2024 at 9:19 PM
Hvaða sjónvarpsefni á ég að sækja til að halda mér vakandi í 8klst flugi? Af netflix eða prime
April 3, 2024 at 6:17 PM
Einhver stórbruni í Fellsmúla/Grensásvegi 😬
February 15, 2024 at 5:42 PM
Lífið er dýrmætt og brothætt. Munið að desember getur verið erfiður fyrir mörg og hlúið að fólkinu ykkar.
Pieta samtökin vinna svo ómetanlegt starf og það er engin skömm að því að leita sér hjálpar ef þetta lítur út fyrir að vera að verða of mikið ❤️
December 12, 2023 at 9:37 PM
Stend á strætóstoppustöð ásamt 10 öðrum konum og strætóarnir keyra fullir fram hjá! Geggjað ánægð með þessa þáttöku og hlakka til að komast í bæinn 💪
October 24, 2023 at 1:43 PM
Tökum okkur andartak til að hugsa til allra þeirra kvenna og kvár sem eru #ómissandi
Takk fyrir ykkur 👏👏👏
Hlakka til að sjá ykkur hin á baráttufundi á eftir
♀️= ⚧️ =♂️
October 24, 2023 at 12:27 PM
PSA 📢
Ef þú varst með áskrift af bæði Stundinni og Kjarnanum og gerðir ekkert í því þegar þau sameinuðust þá ertu líklega að borga ennþá eina greiðslu til Kjarnans og eina til Heimildarinnar.
Þessi til Kjarnans flokkast undir styrk ekki áskrift og þarf að segja upp sérstaklega 🤦
October 15, 2023 at 12:30 PM
Í kvöld fór ég inn á baðherbergi og lokaði mig inni í 2klst. Bara ég, hvitvínsflaska, freyðibað, andlitsmaski og allskonar krem. Mér líður eins og ég sé að koma úr 2 vikna fríi. Namaste 😌
September 9, 2023 at 10:40 PM
Það er ákveðið stig örmögnunar sem næst eingöngu af því að vera ein heima með grátandi ungabarn heilan dag
August 28, 2023 at 5:36 PM
Hringdi í dagmömmuna sem í janúar sagðist ekki taka frá pláss svona langt fram í tímann og núna er "allt löngu orðið fullt"
Ég hata þessi dagvistunar mál svo innilega 😭
August 18, 2023 at 1:43 PM
Erum við samt öll sátt við að vera með þetta lag á heilanum 100% vökustunda? Er það gjald sem við erum tilbúin að greiða?
https://youtu.be/aQUlA8Hcv4s
August 5, 2023 at 5:03 PM
Svo tilbúin í þetta!
August 3, 2023 at 1:35 PM
Eru fleiri að lenda í því að líða eins og þau séu að stela þegar þau fara í búð sem er ekki með Skannað&Skundað?
August 3, 2023 at 12:56 PM
Ég er mætt! Þökk sé @bergthora.bsky.social 🩷
August 3, 2023 at 11:59 AM