Berglind Rós
banner
berglindros.bsky.social
Berglind Rós
@berglindros.bsky.social
Útidýr
GitHub authentication í þróunarumhverfinu mínu hætti að virka eftir Windows update (og eitthvað ssh mauk) og nú er ég að íhuga að skipta um starfsvettvang
June 14, 2024 at 12:49 PM
Lífið er ekki alltaf grænna hinum megin við grasið
April 11, 2024 at 6:53 PM
Alveg úr samhengi rifjaðist þetta upp fyrir mér. Víííí 🐄
April 10, 2024 at 2:02 PM
Reposted by Berglind Rós
Þetta er nú meira ruglið
April 9, 2024 at 3:11 PM
Af bíómynda-áhorfi síðustu daga er ég búin að læra tvær stórgóðar setningar sem ég mun hér eftir leitast við að nota sem oftast í vinnunni, "look at me like this makes sense" og "hack everything!"
March 31, 2024 at 12:21 AM
Ég krefst þess þegar í stað að a) mér batni af þessari kvefpest, b) veðrið batni og c) það verði opnað að gosinu!
March 19, 2024 at 10:32 PM
Getum við plís tekið saman höndum um að gera það félagslega óásættanlegt að tala í síma með hátalarann á á almannafæri #stórumálin
March 4, 2024 at 10:38 PM
Ef þið hafið einhvern tímann velt því fyrir ykkur hvort sé hægt að gera belgískar vöfflur í samlokugrilli þá er svarið nei
February 24, 2024 at 4:55 PM
Barnið svangt og pirrað að vera eitt með foreldrunum í smábæ úti á landi í vetrarfríinu svo við keyptum pönnukökumix en erum bara með djúpa steikarpönnu svo nú er ég jafn pirruð og barnið. Eiginmaðurinn var í bílaviðgerðum á meðan og gekk húddið í hausinn. Kannski bara Tenerife næst...
February 21, 2024 at 5:52 PM
Eru annars ekki allir með píanó með sér í vetrarfríinu? #allteðlilegthér
February 18, 2024 at 4:59 PM
Nei strætó án gríns! Í síðustu viku var einn rétt búinn að keyra á eitt barnið mitt. Núna var annað (og yngra) barn í vagni sem fauk/rann á skilti. Í staðinn fyrir að tékka á barninu og hafa samband við foreldra, þá var það rekið út úr vagninum, í gulri viðvörun, lengst úti á Álftanesi!
January 31, 2024 at 3:02 PM
Hvaða kjáni myndi nú vera með tölvuna tengda við fjöltengi með takka og vera með fjöltengið á gólfinu við fæturna á sér? Nei ég segi bara svona.
October 18, 2023 at 4:26 PM
Hundurinn var að fá lyf fyrir 50 þúsund og eitt barn er brotið og það fór að leka úr loftinu á baðherberginu á neðri hæðinni og ég var að reyna að losa um pinnann í ofninum í vinnuherberginu og þá fór hann að leka og þessi vika má bara fokka sér ok takk bæ.
October 13, 2023 at 4:33 PM
Fékk spurningu frá barni í dag hvort ég væri hjúkrunarkona. Ég er reyndar tölvunarfræðingur, en það lærist ýmislegt á því að eiga þrjú vel virk börn 😄
October 8, 2023 at 10:07 PM
Lærði nýtt orð á internetinu og nýja markmiðið mitt er núna að klífa vitorðastigann
October 4, 2023 at 3:16 PM
Vá hvað þessi leigubílstjóri yrði mín uppáhalds manneskja um eilífð ❤️
Leigubílstjórinn bauð mér kaffi!
September 29, 2023 at 10:24 AM
Er eitthvað í lífinu betra en kaffi og súkkulaði? Nei, svarið er nei. Thank you for coming to my Ted talk.
September 19, 2023 at 1:51 PM
Gervigreindin er ekki að fara að taka yfir alveg strax
September 19, 2023 at 12:02 PM
Innrás Hopp hjólanna hófst á Seyðisfirði...
September 7, 2023 at 8:29 AM
Skammvinn gleði, önnur tómstund breytti skipulagi og stundatöflu, og allt okkar skipulag sprakk í loft upp 🙄
Litla gleðin þegar kemur tímatafla frá tómstund sem #barnið vill vera í, og tímarnir eru ekki einu sinni nálægt því að rekast á neitt annað 🥰
September 2, 2023 at 2:09 PM
Feeling cute might delete later
August 31, 2023 at 10:29 PM
Litla gleðin þegar kemur tímatafla frá tómstund sem #barnið vill vera í, og tímarnir eru ekki einu sinni nálægt því að rekast á neitt annað 🥰
August 29, 2023 at 4:10 PM
#unglingurinn kominn með bílpróf og farinn að keyra #barnið á æfingu, þessi áfangi gleður mig svo mikið! 🥰
August 25, 2023 at 4:51 PM
Getur ekki einhver kippt í einhverja spotta með þessa veðurspá á laugardaginn? 🙏
August 23, 2023 at 9:46 PM
Ágústkvöld 🧡
August 20, 2023 at 10:39 PM