Þórdís Gísladóttir
banner
thordisg.bsky.social
Þórdís Gísladóttir
@thordisg.bsky.social
Author/poet/translator in Iceland (and sometimes in Sweden and Denmark)
February 18, 2026 at 2:53 PM
Er að passa lasið eins árs barn og ekkert huggar hann eins og þegar ég spila Þrjú á palli og syng með.
February 18, 2026 at 11:49 AM
Svona tíu sinnum á dag les ég orðið „áskorun“ þar sem mér finnst að ætti að standa vandamál/verkefni/viðfangsefni/úrlausnarefni.
February 8, 2026 at 9:52 AM
Enginn hefur sagt þessu gamla danska fólki sem ég mæti dag eftir dag fyrir utan búðina á Nørrebro að það sé ekki hægt að hjóla þegar það er hífandi rok, nístandi frost og ísing.
February 1, 2026 at 12:06 PM
Fékk mér púrtvínsglas og hnetur og áferð tannanna er eins og ég hafi borðað gæruskinn.
January 28, 2026 at 11:49 PM
Er að spá í að byrja að reykja. Er hægt að nota uppsafnaðan lífeyrissparnað í sígó?
January 26, 2026 at 11:18 PM
Allir gamlir karlar elska Kára litla og Lappa.
January 19, 2026 at 6:55 PM
Í þessu bakaríi á Klapparstíg fæst unaðslegt rúgbrauð og himneskir kardimommusnúðar og allt á góðu verði. Ég veit ekki hver rekur það og enginn bað mig um að segja frá þessu eða auglýsa.
January 6, 2026 at 3:38 PM
Scamdegi
January 3, 2026 at 10:48 AM
Hef mjög mikinn skilning á þessari ósk um hálfsdagsstarf. Hataði líka öll störfin sem ég vann sem barn. Já og gleðilegt nýtt ár!
January 1, 2026 at 6:24 PM
January 1, 2026 at 3:09 PM
Of margir íslenskir fjölmiðlakarlar eru fjölmiðlamenn vegna þess að þeim finnst svo gaman að hlusta á sjálfa sig.
December 30, 2025 at 1:36 PM
Ég vil að einhver þrýstihópur sjái til þess að Kallakaffi verði endursýnt. is.wikipedia.org/wiki/Kallaka...
Kallakaffi - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
is.wikipedia.org
December 26, 2025 at 9:12 PM
Hugur minn er með fólkinu frá Austurlöndum nær og fjær sem gengur blautt um miðborgina í mjög hlýjum útivistarfatnaði. Það er samt mjög góð stemning í bænum.
December 23, 2025 at 7:10 PM
Ég fer ekki í Kringluna og Smáralind en væri til í að það væri Department Store í Reykjavík. Ég verslaði til dæmis í Torginu í Austurstræti í fortíðinni og Domus á Laugavegi.
December 22, 2025 at 9:46 PM
Íslenskir veitingastaðir loka of snemma.
December 20, 2025 at 10:24 PM
Reposted by Þórdís Gísladóttir
Ein skemmtilegasta vinna sem ég hef nokkurntímann verið í (ég er 👵🏻 og hef verið í mörgum vinnum) er afgreiðsla í bókabúð á annasamri jólavertíð. Kaupa bækurnar í bókabúðum krakkar!
December 15, 2025 at 9:49 PM
Gusumeistari er nýi jógakennarinn
December 8, 2025 at 10:27 AM
Íslenski pallurinn. Fyrir fólk sem hatar jörðina.
December 7, 2025 at 9:50 AM
Bækurnar um múmínálfana og vini þeirra hafa komið út á íslensku í 55 ár. Og þau þurftu samt endilega að kalla þessar sögupersónur „Múmín“
November 28, 2025 at 9:04 AM
Maður (um tvítugt) talar hátt í síma í Det kongelige bibliotek í Kaupmannahöfn:
When you say normal you mean other people. I do things that I like to do, that’s normal for me.
November 20, 2025 at 3:52 PM
Reposted by Þórdís Gísladóttir
Ef ég væri íslenska ríkið myndi ég kannski ekki nota almannafé til að borga fyrir þjónustu Anthropic, sem græðir á því að selja fólki stolin hugverk, oftar en ekki framleidd fyrir styrki frá, you guessed it, ríkinu.
November 19, 2025 at 11:58 PM
Oft er freki kallinn dellukall
November 16, 2025 at 1:40 AM
November 12, 2025 at 12:10 PM
Þegar ég var í grunnskóla kom einkennilegur„forvarnarmaður“ í heimsókn og sagði okkur börnunum að hann hefi verið svo mikill fíkill að hann hefði étið skóáburð. Lengi á eftir þefuðum við vinkonurnar reglulega af skóáburði og veltum fyrir okkur hvernig þetta bragðaðist.
November 12, 2025 at 11:58 AM