Kalli Sig
kallisig.bsky.social
Kalli Sig
@kallisig.bsky.social
Reposted by Kalli Sig
Hneyksli að á fallegum dögum einsog í dag í RVK þá sé staðbundið svifryk það mikið að fólk er með grímu fyrir vitum og finnur sviða í öndunarfærum. Þetta er verst vor og haust þegar bílar eru enn á nöglum þótt það sé engin ástæða til. (Ég er að tala um staðbundin loftgæði, þau voru ágæt heilt yfir).
March 13, 2025 at 7:36 PM
Allt mjög skýrt og/eða klárt...
"The Liverpool manager allegedly acted in an improper manner and/or used insulting and/or abusive words and/or behaviour towards both the match referee and an assistant referee after the match had finished."
February 16, 2025 at 9:40 PM
Reposted by Kalli Sig
Ah já auðvitað Viaplay, hann Garfield heitir… Gústaf á íslensku
December 25, 2024 at 8:41 PM
Í aðdraganda hátíðanna er við hæfi að huga að Jósepum þessa heims og þeirra vanþakkláta en mikilvæga hlutverki. Aldrei aðalatriði en standa alltaf fyrir sínu og eru fulltrúar okkar hinna dauðlegu.
December 12, 2024 at 10:33 PM
Það eina sem ég vil vita er hvort niðurstaða kosninganna hafi áhrif á hvernig lokaþátturinn af Ráðherranum fer. #kosningar2024
December 1, 2024 at 1:53 AM
Ég sleppti kappræðunum og horfði frekar á Planes, trains and automobiles með 10 ára dótturinni sem fílaði Steve Martin bara út af Only murders in the building. Kvikmyndauppeldið gengur fyrir pólitíkinni. Næst er það Christmas Vacation og ef ég næ henni á Chevy Chase vagninn er stutt í Three Amigos.
November 30, 2024 at 12:51 AM
Sko til.
561. Ég er ekki metalmaður, hlustaði ekki á þetta á mínum yngri árum og var heldur ekki heillaður af myndskreytingum hljómsveitarinnar, sem ég sá annars mjög víða. En svo hlustaði ég á jólalög Baggalúts og núna þykir mér næstum vænt um þetta. Fínn metall, myndi hlusta aftur.
The Number of the Beast (2015 Remaster)
Iron Maiden · Album · 1982 · 8 songs
open.spotify.com
November 26, 2024 at 12:43 AM
Watch this space.
Ætli það sé jólalag í vændum?
November 26, 2024 at 12:39 AM
En skemmtilegt. Sundhnúksgígur er einmitt einn af mínum uppáhalds tungubrjótunum.
November 20, 2024 at 11:25 PM
Góður blaðamannafundur og ríkisstjórnin öll menn að meiri. #MaðurAðMeiri
October 14, 2023 at 11:38 AM
Það skiptir ekki máli hvað maður getur. Og ekki heldur hvað maður gerir. Það eina sem skiptir máli er að vera maður að meiri. #MaðurAðMeiri
October 13, 2023 at 9:27 AM
Væri ekki tilvalið fyrir sæta súkkulaðisnáðann að selja Sorpu þetta "Haltu áfram að skila" lag?
September 17, 2023 at 5:25 PM
Þetta er ekki nóg. Auðvitað á kynfræðsla hreinlega að vera hluti af kristinfræði. Hvar annars eiga börnin að læra um að það er bannað að stunda kynlíf fyrir hjónaband, að konur geti eignast börn með heilögum anda og að það sé hægt að búa til konu úr rifbeini karlmanns?
September 16, 2023 at 9:56 AM
Þessir Rómverjar eru klikk.
when in rome
September 16, 2023 at 12:38 AM
Það virðist vera alveg bráðnauðsynlegt að skjóta þá.
August 31, 2023 at 12:21 PM
Mikið er eitthvað rólegt, jákvætt og fallegt hérna í Bláhimni. Er samt ekki bara tímaspursmál hvenær fyrsti bjáninn fær boð hingað og opnar fyrir hinum?
August 7, 2023 at 11:49 PM